17.02.2008 20:59:46 / Tony
Já margir hafa spurt mig að þeirri spurningu hvort við verðum með lið í sumar ég veit það ekki sjálfur hvað menn ætla að gera ég vill að þeir fáu sem kíkja á síðuna eða tengjast liðinu kommenti um það hér að neðan hvort þeir verði með eða ekki.Svo ættum við líka að eiga nóg af leikmönnum vegna þess að Neisti hefur ákveðið að vera ekki með lið í sumar getum fengið einhverja leikmenn úr Neista til að styrkja liðið. Takk fyrir.
Svo vil ég minna á nýja könnun hér neðst á síðunni.
»
23.12.2007 22:18:15 / Tony
Ætlaði bara að láta ykkur vita að því að Firmamótið verður 28 des en ekki 30 eins og átti að vera
»
20.12.2007 21:29:05 / Tony
Já þá styttist í mót hjá okkur,firmamótið hér á Djúpavogi sem að verður sennilega 30. Desember eins og í fyrra og við ætlum að taka þá í því eins og undanfarin tvö ár, okkur hefur ekki gengið vel í mótinu síðan að við stofnuðum þetta lið höfum bæði árin lent í næstneðsta sæti að mig minnir í fyrra fengum við aðeins tvö stig eftir tvö jafntefli og skoruðum fjögur mörk og ætlum við okkur nú að gera enn betur og fara alla leið og vinna dolluna.Við höfum verið að æfa eins og skepnur í vetur og ættum þá að getað stefnt á titilbaráttuna á mótinu og unnið fyrsta bikarinn í sögu félagsins.En ég var að tala við elsku besta Kjartan Braga félaga minn um æfingaleik í Janúar hvernig lýst ykkur á það ég held við náum alveg að manna í 11 manna lið enda getum við líka fengið strákanna frá Egilsstöðum sem spiluðu með okkur í sumar með okkur í lið en endilega þeir sem verða með á mótinu skrifið ykkur í komment hér að neðan
»
04.11.2007 17:55:40 / Tony
Jamm og jæja það er nú langt um liðið að maður bloggaði hér síðast ætlaði að koma með úrslit úr þessum leikjum sem við tókum við útlendingana um daginn það voru þrjú lið semsagt Vetrarbruni Serbía og Pólland og í 1.sæti Serbarni 2.sæti Vetrarbruni. 3.Pólverjarnir þeir sem spiluðu fyrir Vetrarbruna voru Natan,Sævar,Gunnar Flóki,Jón Einar,Hannes , þetta var bráðskemmtilegt mót sem við tókum reiknum með að gera þetta aftur og eftir mótið var líka farið saman á barin og drukkið úr sér lífið.
En ég vill minna á að á Fimmtudögum klukkan sjö er búið að bæta við tíma fyrir okkur en þá er ekki spilaður fótbolti heldur körfubolti vona að það verði jafn góð mæting í það eins og fótboltann.
»
27.09.2007 20:05:09 / Tony
Já þá er komið að því tveir litlir æfingaleikir eru framundan hjá Vetrarbruna.Þetta eru tveir leikir Vetrarbruni Vs Helvítis Útlendingar Útlendingar buðu í okkur og tókum við þessari áskorun fyrri leikurinn á bara að fara fram í íþróttahúsinu en svo er talað um að sá seinni á að fara fram á Djúpavogsvelli semsagt þá spilað á sjömanna völl 2x 15 mínútur.Ég segi að það komi ekki annað til greina en að við drullumst til að vinna helvítin þetta verður samt erfitt en fín æfing fyrir okkur Útlendingarnir eru með í liðinu hjá sér tvo fyrrum atvinnumenn annar þeirra á 13 leiki að baki fyrir A landslið Makedoniu og fyrir nokkrum árum spiluðu þessar kempur fyrir hönd Neista þannig að við þekkjum vel til þeirra.En eruði ekki klárir í slagin leikirnir verða auglýstir betur síðar
Áfram VETRARBRUNI
»
13.09.2007 21:27:30 / Tony
Já það er Vetrarbrunamaður sem á afmæli í dag það er Gunnar Sigvaldason að nafni og óska ég þessum hættulega framherja til hamingju með 22 ára afmælisdaginn
»
11.09.2007 21:53:27 / Tony
Jább það var bolti í gær og það voru tíu sem mættu og þeir voru, Natan,Kristján Snær,Jón Einar,Hannes,Matti,Helgi Týr,Tveir pólverjar,Elli, og Jóhann. já þetta var svo sannarlega skemmtilegt í gær og höldum þessu áfram það mæta alltaf fleiri og fleiri í bolta höldum þessu áfram eins og ég segi og höfum gaman af þessu.Bolti aftur á morgun klukkan 19:00
»
08.09.2007 21:24:24 / Tony
Þeir sem mættu í bolta í gær voru Biggi,Matti í Hetti,Mattías
Tim,Helgi Týr,Gummi Winterburn,Jón Einar,Natan,Hannes,Kristján
Snær. Vorum semsagt níu þetta var bara helvíti gaman og ég vona að
það verði ennþá jafn góð mæting í allan vetur bolti aftur á
Mánudaginn klukkan 19:00 sjáumst þá
»
04.09.2007 21:06:39 / Tony
Ég var að koma heim af Vetrarbrunabolta það voru átta sem mættu og þeir voru. Natan,Helgi Týr,matti,Jón Einar,Kristján,Þórir,Róbert,Hannes, en það er breyttur tími á fótboltanum í vetur verðum ekki á þriðjudögum og fimmtudögum heldur fengum við tíma á Mánudögum Miðvikudögum og föstudögum frá klukkan 19:00 - 20:30 og vona að sem flestir mæti sjáumst aftur á fösudag þar sem verður ekki bolti á morgun
»
02.09.2007 20:41:59 / Tony
Já við Vetrarbrunamenn erum sko ekki dauðir eins og margir halda ætlum að hefja æfingar á þriðjudaginn og svo aftur á fimtudag eins og er þá er það fastur tími hjá okkur að vera í bolta á þeim dögum því að Neisti eru með tíma á hinum dögunum í vikunni inní íþróttahúsi.Við ætlum líka að reyna að byggja upp nýtt lið og vera komnir með stóran hóp í Apríl eða Maí og ætlum að taka fullt af æfingjaleikjum til að hita okkur upp fyrir deildina en annars hef ég ekki meira að segja í bili sjáumst í bolta á þriðjudaginn
»
30.07.2007 14:18:12 / Morrow
Neinei
»
30.07.2007 14:17:54 / Morrow
NIIII
»
25.07.2007 15:24:22 / Bouldie
Vetrarbruni er ekki lengur með í utandeildini. Ástæðan mun vera
að þjálfara liðsins finnst greinilega of erfitt að taka upp síman
og hringja í önnur lið sem ætti að vera einfaldasti hlutur í
heiminum sem og að svara í síman þegar hringt er í hann. En allt
kom fyrir ekki og þetta gat hann því miður ekki.
Ekki nóg með að hann geti ekki látið önnur lið vita heldur
gat hann ekki einu sinni látið liðsfélaga sína vita af frestun á
leik.
»
17.07.2007 22:38:21 / Tony
Já frábær leikur í kvöld áttum allavega að sigra stærra kannski
10 - 2 miðað við færin sem við fengum í leiknum.Ég kem með
almennilega umfjöllun á morgun þegar ég er búin í
sigurvímunni en liðið í dag var svona skipað 4,4,2
Steinar Pálmi
Jón Ingvar
Ársæll
Þorkell
Jóhann Atli
Steinar
Gummi Siggi Helgi
Bjarni Rafn
Siggi
Már
Helgi Týr
og á bekknum voru Kjartan Ágúst, Grettir,Kristján Snær,Jón Einar
og Kalli Ben,
ég vona að ég gleymi engum en þarf að fara blee
»
17.07.2007 18:37:15 / Tony
Hópurinn fyrir leikinn í kvöld gegn Þristinum
Kjartan Ágúst,Grettir,Steinar Pálmi (M),Bjarni Rafn,Kalli
Ben,Jón Einar,Kristján Snær,Jón Ingvar,Þorkell,Gummi (F),Siggi
Már,Siggi Helgi,Matti,Gísli Hjörvar,Kristján
Ingimars,Elli,Þórir,Gunnar Rúnar, og ég set ? merki við Gunnar
Sigvalda þar sem að hann er fjarverandog var ekki viss hvort hann
yrði með það er nú skarð fyrir skildi í framlínunni,
En ég á bara von á góðum og skemmtilegum leik vona að sem
flestir mæti á völlin og styðji sína menn til dáða og vil ég bjóða
Þristarmönnum velkomna til leiks
Áfram Vetrarbruni.
»
Síður:
1 2 3 ...
5